Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
29.11.2007 | 13:08
...og kúnnarnir borga.
Er það þetta sem þjónustugjöldin mín fara í? Ólifnaðar- og óhófsmatarveisla fyrir útvalda starfsmenn Glitnis?
100 starfsmenn Glitnis í mat fyrir 500 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2007 | 11:27
Hver borgar fyrir þessi ósköp?
Ég held að það sé morgunljóst að neytendur greiða fyrir svona corporate-óhóf úr eigin vasa, með einum hætti eða öðrum. Það er ágætt að þetta er ekki farið að tíðkast hér á landi.
Fleira var það nú ekki.
Nuddaður og klipptur í vinnunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2007 | 10:54
Þökkum Sjálfstæðisflokknum
Sjálfstæðisflokkurinn ætti, að mér finnst, að senda fulltrúa sína til Sierra Leone og Búrkína Faso. Ég er nokkuð viss um að þau ríki myndu færast eilítið ofar á listann ef Sjálfstæðisflokkurinn fengi að taka aðeins til hendinni þar.
Lífskjör best á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.11.2007 | 16:15
14 milljörðum of hátt
20.11.2007 | 14:20
Húsnæðismarkaðnum handstýrt af jafnaðarmanni
Hljómar þetta ekki ekki dálítið eins og formáli uppskriftar að stórfelldu skipbroti húsnæðismála hér á landi?
Ég hugsa að flestir séu sáttir við að markaðsmálin fái að þróast í takt við óskir seljenda á markaðinum, í stað þess að þau þróist í takt við óskir ungs fólks sem telur sig of fínt til að leigja íbúðir eins og aðrir hafa þurft að gera.
Viðfangsefnið er að snúa þróun á húsnæðismarkaði við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2007 | 14:15
TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA, EYÐSLUSEGGIR
Það hlaut að koma að því að útgjaldastefna ríkisstjórnarinnar biti litla manninn í rassinn. Það þýðir náttúrlega ekki að henda í sífellu peningum út um gluggann og vona bara að innistæðan í bankanum hækki í stað þess að lækka í réttu hlutfalli við eyðsluna.
Nú hef ég samt mestar áhyggjur af því að verkalýðsfélögin muni sýna af sér eitthver glapræði í komandi kjaradeilum. Það versta sem gæti komið fyrir okkar litla land væri ef verkafólk og aðrir sem eiga innkomu sína undir kjarasamningum komna fái ríflegar launahækkanir til að "vega upp á móti aukinni misskiptingu í þjóðfélaginu". Þá fyrst færi allt til fjandans.
Það er nefnilega dálítið eins og fólk eigi erfitt með að skilja að það eiga ekki allir HEIMTINGU á að fá Land Rover upp í hendurnar, sama hvaða atvinnu þeir gegna. Fólk þarf að vinna sig upp í Land Roverinn fyrst.
Lánshæfishorfur ríkissjóðs versna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2007 | 13:28
KRÓNUS
...eða Bónan? Mér er alveg sama. Ég á bágt með að sjá það hvaða máli það breytir hafi þessar verslanir á einhvern hátt "brotið lög".
Hér er náttúrlega verið að ræða um tvær matvöruverslanir sem eru LÁGVÖRUVERÐSVERSLANIR. Hvaða máli breytir það í raun og veru fyrir almenna neytendur hvort verðið á mjólkinni sé einni eða tveimur krónum hærra en það gæti verið? Segjum að hver neytandi drekki tvo lítra af mjólk á viku, samtals átta lítra á mánuði. Mismunurinn á því sem hann er að borga og því verði sem hann ætti annars að vera að borga er þá 8-16 krónur á mánuði. Ekki get ég ímyndað mér að svona kostnaðarsamar aðgerðir yfirvalda muni nokkurn tíma koma til með að borga sig, fyrst við erum bara að tala um lágvöruverðsverslanir og ekki um hærri upphæðir í krónum talið.
Samkeppniseftirlitið gerir húsleit hjá Bónus og Krónunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |