21.4.2008 | 20:48
Enda allir í Cannes að slaka á!
Hverju búast menn svo sem við? Ætla menn að fara að gráta það að Standard & Poors lítist ekki á blikuna þegar starfsmenn úr heilli deild skella sér bara í sólarlandaferð á 100-þúsund-króna-hóteli-nóttin í viku, þegar lífið liggur við?!
Ef S&P eru neikvæðir þýðir náttúrlega ekkert að gráta Björn bónda heldur safna liði og vinna vinnuna sína. Svei mér þá, fyrir mér horfir þetta þannig við að menn séu bara að súpa dreggjarnar af nýliðnu góðæri og eyða síðustu krónum þeirra sem borga brúsann, viðskiptavinanna - í frönsk kampavín og franskar ostrur.
Verði þeim að góðu. Ég verð hér heima og sýp saltan sjó og ét það sem úti frýs. Á meðan vextirnir af húsnæðisláninu hækka.
![]() |
Lánshæfiseinkunn Glitnis lækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Af mbl.is
Viðskipti
- Styrkja stöðu íslensku í atvinnulífinu
- Útgjöld til hernaðar- og varnarmála aukast um allan heim
- Sameining við Kviku gæti skapað öflugan banka
- Fyrirtæki og heimili standi vel heilt yfir
- Tæknin breytir leiknum
- Segja sjö þúsund starfsmönnum upp
- Dollarinn niður en vextir upp
- Seldu lagerinn og standa vaktina í Prís
- Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify
- Stólpi flytur á Gullhellu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.