Leita í fréttum mbl.is

Eru viðbragðsaðilar að bregðast fólki?

Vegurinn til og frá Reykjavík til austurs er sum sé lokaður. Enginn kemst úr borginni nema hann ætli norður eða vestur. Höfuðborginni. Nú er ég að velta einu fyrir mér. Fjöldinn allur af viðbragðsaðilum er til taks í neyðartilfellum sem þessum:

1. Vegagerðin.

2. Bæjarstarfsmenn

3. Hjálparsveitirnar.

4. Slökkviliðið

5. Lögreglan.

Allir þessir aðilar ættu að geta látið til sín taka þegar almennir borgarar þurfa á hjálp að halda. Þegar aðkoman að sjálfri höfuðborginni er hreinlega lokuð, hvers vegna gerir enginn neitt? Er það ekki nægileg röskun á samgöngum og lífi fólks að vera strandað í bænum og komast hvergi? Eða að vera strandað í Hveragerði og komast ekki heim til sín? Nú spyr ég náttúrlega eins og versti karlfauskur, en í hvað eru skattpeningarnir eiginlega að fara?

 


mbl.is Þrengslin og Hellisheiði lokuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar búa engir hippar eða aðrir mótmælendur

Alveg er ég viss um að þarna úti búa ekki hippar sem kippa sér upp við það að gæði landsins verði nýtt íbúum þess til hagsbóta.

Það er annað en hérna heima, þar sem tilfærsla á hverri steinvölu þarf að fara í umhverfismat og ótal umræður á Alþingi, auk þess sem fólk undir tvítugu grætur krókódílatárum yfir auknum hagvexti.


mbl.is Virkjað fyrir 55 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amerískt smit

Ég er ekki hrifinn af þessum sið.

Það er varla að fólk komist leiðar sinnar á þessum degi fyrir öskrandi börnum, klæddum í skrímslabúninga sem keyptir eru í ToysRus. Það var svo sem við því að búast að gamli norræni siðurinn, að hengja öskupoka aftan á græskulausa vegfarendur viki fyrir "nýjum" sið sem gefur kaupmönnum meira í vasann. Gamli siðurinn var nefnilega ekki nógu söluvænn.


mbl.is Furðuverur á faraldsfæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna kostar enn í göngin?

Eins afkáralegt og þetta hljómar finnst mér þetta prýðisframtak hjá þessum ökumanni og dæmi um borgaralega óhlýðni sem ég get vel hugsað mér að taka sjálfur upp. Ég man ekki betur en að gjaldtaka um göngin hafi átt að leggjast af þegar fjárfestingin hefði verið greidd upp. Nú hefur fjárfestingin borgað sig. Hvers vegna kostar þá enn í göngin?
mbl.is Ók 40 sinnum um Hvalfjarðargöng án þess að borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk, bankafólk.

Þökkum spákaupmönnunum fyrir þessa hörmulegu þróun.

Þökkum spákaupmönnunum jafnframt fyrir styrkingu krónunnar og þar með hnignun sjávarútvegsins og hörmulega þróun í landsbyggðarmálum samfara henni.

Þökkum spákaupmönnunum og bankafólkinu fyrir að stuðla að óðaverðbólgu og þenslu með tilheyrandi vexti verðtryggðra lána sem tekin hafa verið í bönkunum. Þökkum bankafólkinu ennfremur fyrir að keyra upp verð á húsnæði, viðhaldi húsnæðis sem og fasteignagjöldin.

Takk fyrir þetta, frumkvöðlar og forvígismenn nýja hagkerfisins.


mbl.is Raungengið ekki lægra í heilt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvæð þróun

Mikið er gleðilegt að dómaframkvæmdin skuli vera farin að breytast þannig að lögin ná nú yfir háttsemi sem þessa og telji hana til kynferðislegrar áreitni.

Einhverjir hefðu sjálfsagt kallað háttsemina öðru nafni fyrir 20 árum eða svo!


mbl.is Sendi stúlkum klámfengnar myndir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverrar þjóðar eru mennirnir?

...það væri fróðlegt að vita hvort mennirnir sem handteknir voru eru erlendir eða íslenskir.
mbl.is Öxin fannst og þýfi endurheimt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningarnir verndaðir en ekki fólkið

Það er staðreynd að svokallaðir neyðarhnappar í bönkum og verslunum eru settir upp í þeim tilgangi að koma hugsanlegum ræningjum út úr versluninni/bankanum sem fyrst, til þess að þeir hafi minni tíma en ella til að sanka að sér fjármunum til að hafa á brott með sér.

Það er hins vegar nægur tími fyrir ódæðismennina að ganga í skrokk á einhverjum óheppnum starfsmanni áður en haldið er á brott. Neyðarhnapparnir kunna ennfremur að espa upp glæpamennina, sem setur starfsfólkið í meiri hættu en annars. Því segi ég það mikið ábyrgðarleysi að ætlast til þess af starfsfólki sínu að ýtt sé á fælingarhnappana til þess eins að vernda fáeinar krónur og aura og setja sjálft sig í stórhættu í staðinn.

Þeir sem taka ákvörðun um að setja upp slíka hnappa eru auk þess á þreföldum launum þeirra sem þurfa síðan að ýta á þá.


mbl.is Viðbrögð gjaldkera hárrétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eignatengsl Moggans og Nova skýrast

Þetta er nú það ósvífnasta sem ég hef séð lengi í fjölmiðlum. Mig langar til að vekja athygli á því að Mogginn er nú í meirihlutaeigu Novator, sem á farsímafélagið Nova.

Er svona "óháð" fréttaumfjöllun ekki í það minnsta virðisaukaskattskyld fyrir Nova?


mbl.is Tilboð á áskrift og 3G símum hjá Nova
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þingmaður
Þingmaður
Fyrrum þingmaður sem ekki vill láta nafns síns getið.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband