Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
11.2.2008 | 13:30
Vilhjálmur er seinn!
Á fundi í Valhöll | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2008 | 21:06
Ríkisábyrgðin var sem sagt engin vitleysa!
Mér hefur fundist dálítið sniðugt að fylgjast með gengisþróun Decode sem og öllum þeim nýjungum sem hafa verið að koma frá þessum snillingum síðustu árin. Mér finnst það aðallega sniðugt þar sem svo margir voru fullir efasemda vegna ríkisábyrgðarinnar sem samþykkt var á þingi fyrir nokkrum árum.
Í dag er allt í fullum blóma þarna á bæ.
Hver hlær þá núna? Sá hlær best sem síðast hlær!
deCODE markaðssetur nýjung | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2008 | 21:01
Vilhjálmur er með bein í nefinu
Vilhjálmur mun standa uppi sem sigurvegari í þessu leiðindamáli. Hann gerði það í síðasta útspili sínu og sanniði til - hann getur gert það aftur.
Sendið honum baráttukveðjur og hlýjar hugsanir!
Pólitísk staða Vilhjálms rædd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2008 | 15:32
Femínistarnir...
Vangaveltur um netmarkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2008 | 15:29
Vilhjálmur heldur velli!
Mikið lifandi skelfingar ósköp er ég stoltur af honum Vilhjálmi. Hann er heldur betur búinn að standa af sér eitt stærsta pólitíska slagviðri í manna minnum. Ekki aðeins reis hann aftur úr öskustónni og kemur tvíefldur til leiks í borgarstjórn, heldur kveður hann núna fréttamenn í kútinn með þessu nýjasta útspili sínu. Vilhjálmur á enn mikið inni!
Yfirlýsing frá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2008 | 11:47
Hvers vegna var það ekki gert í gær?
Ég hef áður tjáð mig um ráðaleysi viðbragðsaðila við veðurofsanum í gær. Nú spyr ég: hvers vegna voru aðgerðir ekki samræmdar strax í gær, þegar verstu hryðjurnar riðu yfir og umferðin var öll úr skorðum?
Stundum finnst manni hreinlega eins og maður gæti sjálfur gert mun betur en þeir sem kallast eiga "fagaðilar".
Virkja á Samhæfingarmiðstöðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2008 | 10:50
Ábyrgðarlaus orð Sigurðar Kára
Ekki skil ég hvað mönnum gengur til með að láta svona út úr sér. EINU afskipti ríkisins af þegnunum sem hægt er að réttlæta með nokkrum hætti eru nákvæmlega þessi; að hindra að brennivín flæði um og yfir allt. Áfengi hefur eyðilagt líf fjölda fólks. Það er staðreynd.
Mér finnst hreinlega allt í lagi þótt aðgengi að áfengi á markaði sæti takmörkunum, svona rétt eins og byssueign - þótt ekki sé um nákvæmlega sömu hlutina að ræða.
Í reynslusölu í Reykjavík: Sunnlenski bjórinn ekki til á Suðurlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2008 | 16:56
Búum við á landnámsöld?
Hvers vegna ætli sé ekki hægt að halda þessari leið opinni? Maður hefði haldið að Vegagerðin og aðrir viðbragðsaðilar væru öllum tækjum búnir til þess að geta haldið 40 kílómetra löngum vegarspotta tiltölulega snjóléttum - svona allavega rétt yfir mesta umferðartímann! Þarf fólk þá bara að gista á Hótel Örk fram á morgun?
Þetta finnst mér ekkert sérlega öflugar aðfarir hjá vegheflurum og öðrum sem koma við sögu.
Ætla yfir þrátt fyrir lokun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2008 | 15:17
Þetta...
...er það sem ég hef alltaf sagt. Bull og kellingabækur að símar geti valdið heilaæxlum. Hvernig DATT fólki það í hug til að byrja með?
Frænka mín vinnur hjá rafvöruverslun hér í bæ og notar farsímann sinn mikið, auk þess sem hún hefur lesið mikið um ýmsar gerðir farsíma. Aldrei hefur hún orðið vör við eða heyrt af neinum sem fengið hefur krabbamein í höfuð sökum símnotkunar.
Hvað segir það manni?
Engin tengsl milli farsímanotkunar og heilaæxla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2008 | 11:21
Skinhelgur heilbrigðisráðherra
Hvers vegna í ósköpunum ættu Alþingismenn ekki að fá að njóta sömu mannréttinda og aðrir landsmenn?
Nú eru reykingar ekki ólöglegar og reykherbergi ekki heldur. Hvernig er hægt að segja það til marks um góða starfshætti að gera þingmönnum lífið leitt?
Aukinheldur: nú veit ég að Guðlaugur Þór er yndislegur maður og ákaflega heilsteyptur persónuleiki, en að tala um mál sem þetta á Alþingi Íslendinga virðist fremur vera tilraun heilbrigðisráðherra til þess að vekja athygli á sjálfum sér, frekar en góðum málstað. Hafa þingmenn ekkert þarfara að gera? Er þetta ekki frekar eitthvað sem á að ræða á göngunum í stað þess að vekja máls á þessu uppi í pontu?
Vill láta loka reykherbergi á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |