Leita í fréttum mbl.is

Hver er munurinn á þessu og reykherbergi?

Ég bara spyr, af því að ég hélt að sérstök reykherbergi væru óheimil LÖGUM samkvæmt.
mbl.is Reykingahús úr snjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upptaka Evru er móðgun við sjálfstæðisbaráttuna

Ég á mjög erfitt með að trúa því að framámenn í íslensku viðskiptalífi langi í raun og veru að taka upp sameiginlegan gjaldmiðil með ESB. Ég á erfitt með að trúa því að nokkurn Íslending langi í raun til að varpa gjaldmiðli íslensku þjóðarinnar fyrir róðann, til þess eins að tryggja sig fyrir erlendum gengismun!

Krónan er það sem sameinar íslensku þjóðina. Líklega er krónan síðasta sameiningartáknið sem við eigum öll saman. Ekki vill fólk kasta því á glæ til að rúna nokkrar krónur af tapi í niðursveiflum?

Nú hljómar þetta kannski eins og eintóm tilfinningarök, en ég vil minna á að mannskepnan er tilfinningavera - ekki liður í ársreikningi.


mbl.is Kallar eftir skýrri evrustefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vona að þeir láti sér þetta að kenningu verða

Það er fráleitt að hugsa sér að málinu verði vísað  frá dómi án efnislegrar niðurstöðu, enda mikil þörf á að dómur fáist í því.

Dóttir mín átti m.a. efni sem varið var af reglum höfundarréttarins og deilt inni á vefsíðunni sem um ræðir hér. Hún sendi fjöldamörg bréf til þess að fá mennina til þess að koma í veg fyrir að efninu hennar yrði deilt út um allan heim, án árangurs.

Í mínum huga er þetta hreinn og klár þjófnaður. Ég vona að fleiri séu á þeirri skoðun.


mbl.is Máli gegn Istorrent ekki vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göng, strax

Ekki er enn búið að vinna í málum Ísfirðinga og Bolvíkinga. Hvers vegna hefur ekki enn verið borað fyrir jarðgöngum þarna á milli? Ég tel að heldur liggi á slíkum göngum en Sundabraut, margumræddri.
mbl.is Snjóflóð féll á Óshlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur heldur enn velli!

Þetta er það sem ég sagði fyrir nokkrum dögum (sjá hér að neðan) og segi enn og aftur. Vilhjálmur lætur ekkert stöðva sig og heldur áfram ótrauður í að gera borgina að betri borg fyrir alla. Nú má fólk einfaldlega fara að einbeita sér að öðrum hlutum - sem skipta borgarbúa máli.
mbl.is Vilhjálmur: Hef axlað ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur er seinn!

Þetta finnst mér ekki beint til eftirbreytni. Ég hef setið hér og beðið í hálftíma eftir að blaðamannafundurinn hefjist, en ekki bólar á Vilhjálmi eða öðrum borgarfulltrúum. Ég vona svo sannarlega að þau hafi gilda og góða afsökun fyrir þessari seinkun. Annars myndi ég kalla þetta vanvirðingu við kjósendur.
mbl.is Á fundi í Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisábyrgðin var sem sagt engin vitleysa!

Mér hefur fundist dálítið sniðugt að fylgjast með gengisþróun Decode sem og öllum þeim nýjungum sem hafa verið að koma frá þessum snillingum síðustu árin. Mér finnst það aðallega sniðugt þar sem svo margir voru fullir efasemda vegna ríkisábyrgðarinnar sem samþykkt var á þingi fyrir nokkrum árum. 

Í dag er allt í fullum blóma þarna á bæ.

Hver hlær þá núna? Sá hlær best sem síðast hlær!


mbl.is deCODE markaðssetur nýjung
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þingmaður
Þingmaður
Fyrrum þingmaður sem ekki vill láta nafns síns getið.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband